gisli(hja)internet.is Vinstri hreyfing er best!
KOMASO!©®Öll réttindi áskilin! Vinstri hreyfing er best!

27. July 2010

Kaþarsis 2010

Flokkur Hlaup — Gísli @ 07:27

Ég er kominn í sumarfrí. Fyrsti dagurinn fór í greinargerðaskrif og uppgjör og þess á milli fékk ég vægt tilfelli af símasvepp vegna tíðra hringinga hlaupara, þríþrautarfólks og járnbræðra. Allir hafa skoðun á stóra Laugavegsmálinu, stóru Þríþrautarhneykslunum, persónum og leikendum í þessu leikriti lífsins. Mér datt í hug að líkja þessu við Kaþarsis en það er forngrískt hugtak sem merkir hreinsun eða útrás.
Samkvæmt skáldskaparkenningu Aristótelesar er kaþarsis markmið harmleiksins. Með því að sýna athafnir manna og vekja með því vorkunn og skelfingu veitir hann tilfinningunum útrás. En í mínum huga er þetta enginn harmleikur, heldur gleðileikur, og hér er enginn skotinn, hvorki sendiboðar né aðrar persónur.

Ég rifjaði upp Kópavogsþrautina í vor, tók saman greinargerð og sendi hana Ásgeiri og Bibbu til yfirlesturs, eftir það Þórdísi, sem var líka keppnisstjóri. Þessi greinargerð mín er núna á triathlon.is.

• • •

1 athugasemd »

  1. [...] P.S. Að sjálfsögðu er opið fyrir athugasemdir. Hér er ekki farið í manngreinarálit. Ég vek einnig athygli á færslu minni um þetta hérna. [...]

    Pingback by Kópavogsþrautin 2010 « Þríþrautarsamband Íslands — 27. July 2010 @ 07:29

Comments RSSTrackBack URI

Skrifa athugasemd

Knúið með: WordPress • Шаблон: LOGIN