gisli(hja)internet.is Vinstri hreyfing er best!
KOMASO!©®Öll réttindi áskilin! Vinstri hreyfing er best!

23. July 2010

Ofurhlauparáð fundar

Flokkur Hlaup — Gísli @ 09:05

Á fundi ofurhlauparáðs varð sú niðurstaða að leggja drög að reglum fyrir framkvæmd og skipulag ofurhlaupa.

Í ráðinu eru: Gunnlaugur formaður, Svava, Elín, Jói Kristjáns og undirritaður (sem er ekki ritari ráðsins og kemur það á óvart). Því miður vantar Svövu á þessa mynd en hún var á fullu við Laugavegsundirbúning.

• • •

Fylgdarþjónustan

Flokkur Hlaup — Gísli @ 06:05

Ég hef hitt nokkra Laugavegsfara undanfarna daga og þá ber stóra fylgdarmálið auðvitað á góma. Þeim kom umræðan á óvart, höfðu ekkert heyrt innfrá um þetta og taldi einn þeirra líklegast að meint óánægja væri bundin við hluta af einum tilteknum skokkhóp hér á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu, sem hafði reiknað með öðrum úrslitum í kvennaflokki. Síðan fóru menn að hugsa upphátt um hvaða gagn hefði verið af fylgdarmanni þennan dag:

Ekki gat hann haldið uppi jöfnum meðalhraða enda er það frekar erfitt upp og niður ósléttar og grýttar brekkur.
Ekki gat hann tekið vindinn því það var meðvindur.
Ekki þurfti hann að bera drykki því á þessari leið eru þrír lækir sem þorna aldrei.
Hvatning getur skipt máli en sá sem sér sigur í sjónmáli þarf sjaldan hvatningu.

Viðbót: Í umræðuhalanum á hlaup.com segir síðasta innleggið eiginlega allt sem segja þarf í þessu máli.

• • •
Knúið með: WordPress • Шаблон: LOGIN