gisli(hja)internet.is Vinstri hreyfing er best!
KOMASO!©®Öll réttindi áskilin! Vinstri hreyfing er best!

13. July 2010

Fjölmiðlarýni -II

Flokkur Hlaup — Gisli @ 17:54

Þetta er framhald á pistlinum Fjölmiðlarýni hér að neðan:

Eftir hádegi í dag hafði ég samband við íþróttadeild RÚV og ræddi við ÁE, sem er bæði viðræðugóður og jákvæður í garð okkar þríþrautarfólks og tjáði mér að í gærkvöldi hefði mínútulöng frétt verið tilbúin. Hins vegar hefði pródúsent hafnað myndefninu vegna lélegra gæða og því varð ekkert úr útsendingu. Ég tjáði þá skoðun mína að okkur væri sama þótt myndgæðin væru ekki upp á marga fiska. Þess væru dæmi að myndefni tekið með farsíma hefði fylgt frétt á RÚV.

Guðrún Helga tók myndirnar í HD (sem þýddi háskerpa, síðast þegar ég fletti því upp) en kerfið hjá RÚV er gert fyrir PAN (sem ég veit ekkert um). Þar með þarf að taka myndirnar inn í kerfið hjá RÚV eftir tæknilegum krókaleiðum sem fákunnátta mín kemur í veg fyrir að ég tjái mig um. Þetta virðist ekki hafa tekist í gærkvöldi en í dag átti að reyna aftur. Í þessum efnum vegur vilji jafnan þungt á metum.

Mér var einnig bent á að hafa samband að ári með mánaðar fyrirvara og þá væri eflaust hægt að fjalla meira um hálfkarlinn, jafnvel í stuttum þætti en við yrðum væntanlega að kosta klippingu og vinnslu. Einhvern veginn ætti það að sleppa til.

Ég fékk einnig ábendingu um að stutt frétt hefði verið á Bylgjunni um hálfkarlinn í hádeginu á mánudaginn. Ég á ekki von á frekari umfjöllun í miðlum 365 sem þó hafa yfir sex íþróttarásum að ráða.

Kjarni málsins II: Við sendum úrslit til fjölmiðla, skrifum stuttan pistil með, birtum upplýsingar á netinu, vísum í þær, tökum upp myndefni og bjóðum það endurgjaldslaust. Þrátt fyrir þetta er umfjöllunin ekki meiri en raun ber vitni.

Í sjónvarpinu hefur öðru hverju sést auglýsing með knattspyrnuleik þar sem staðan er 74-0. Þar er bent á að leikurinn væri meira spennandi ef fleiri en eitt lið væri á vellinum.

• • •

Fjölmiðlarýnin

Flokkur Hlaup — Gisli @ 10:47

Fyrir hálfkarlinn í Hafnarfirði ákvað keppnisstjórn í samvinnu við ÍBH og SH að ganga lengra í útbreiðslumálum. Tryggðir voru nokkrir ljósmyndarar og ráðinn myndatökumaður (vön fréttakona) með góða vél á fæti og hljóðnema og tók hún upp nokkra klukkutíma af efni. Þetta mun nýtast okkur í myndbandagerð og kynningarefni fyrir næsta ár og ekki leiðinlegt að geta sýnt keppendur í sólskinsskapi í sól og blíðu. Okkur fannst vel takast og allir voru ánægðir að lokinni keppninni. Í samfélagi þríþrautarfólks er gleðin ráðandi för og það er auðvitað aðalatriðið.

Við sendum úrslit til allra fjölmiðla hálftíma eftir að keppni lauk, vísuðum á úrslitasíðuna, skrifuðum smá texta með og bentum á að Guðrún Helga, fréttakonan okkar, ætti glás af myndefni á boðstólum, án endurgjalds.

Ég skrifaði pistil á triathlon.is og sá að Mbl. hafði nýtt sér hann í blaði dagsins, þar sem umfjöllun um hálfkarlinn var EKKI á íþróttasíðu, heldur á opnu þar sem fjallað er almennt um afþreyingu og hreyfingu fólks. Þar sem maður er ánægður með hvern þann mola sem dettur inn á síður netmiðla og pappírsmiðla sleppur þetta til.
Sjónvarpsstöðvarnar hafa enn ekkert birt og nú er þriðjudagur þegar þetta er ritað. Í íþróttum og fréttamálum almennt, eldast tíðindin smám saman og þrátt fyrir yfirlýstan góðan vilja hjá RÚV og vott af áhuga hjá Stöð 2, hefur hann engu skilað enn. Ég reiknaði með einhverju á RÚV í gærkvöldi eftir samtal við ÁE á íþróttadeildinni þar en fékk í staðinn mörk úr bikarleik í knattspyrnu milli einhverra neðrideildarliða. Á Stöð 2 er bara bolti og bolti og golf. Nýir vendir á stöðvunum sópa greinilega á sama hátt og þeir gömlu.

Við þurfum kannski að klippa 2 mínútna myndskeið, hljóðvinna það og semja textann og mæta með þetta tilbúið. Þá verður kannski hægt að sýna þetta áður en vika er liðin frá keppninni. Aðrar íþróttir hafa ekkert fyrir því að koma efni á framfæri og fá mikla umfjöllun. Ég veit að ég hef fjallað um þetta áður og þetta fer eflaust að verða þreytandi að einhverra mati en mér finnst þetta ekki boðlegt.

Kjarni málsins er þessi: Við héldum Íslandsmeistaramót við góðar aðstæður og með metfjölda þátttakenda þar sem Íslandsmet voru sett í báðum flokkum. Árangur sigurvegaranna hefði dugað í verðlaunasæti á mörgum alþjóðlegum mótum.

Er þetta ekki nógu fréttnæmt?
Maður spyr sig.

• • •
Knúið með: WordPress • Шаблон: LOGIN